Nafnið fyrir iPhone

Persónuvernd

Síðast uppfært 17. október 2026

Í stuttu máli

Nafnið sendir engin gögn til Cevlin. Appið hefur engan aðgang hjá okkur, engar greiningar, engar auglýsingar og enga rakningu. Ef þú tengist maka fara listarnir á milli ykkar í gegnum iCloud ykkar, og kaup fara í gegnum App Store. Cevlin sér hvorugt.

Það sem þú vistar

Nöfn sem þú setur á listann þinn og röðun þeirra, listi frá maka, nöfn foreldra sem þú slærð inn til að sýna fullt nafn barnsins, og val á þema, útliti og tungumáli eru geymd í appinu á tækinu þínu. Nöfn foreldra fara aldrei úr símanum.

Tenging við maka í gegnum iCloud

Tengingin er valkvæð. Þegar þú býður maka býr appið til sameiginlegt svæði í þínu iCloud (CloudKit) og deilir því aðeins með þeim sem þú sendir boðið. Þar geymir hvort ykkar eina færslu: númer nafnanna á listanum úr Mannanafnaskrá, merkta með auðkenni sem Apple úthlutar iCloud-aðganginum fyrir þetta app (ekki nafni þínu eða netfangi). Svo maki geti samþykkt boðið sýnir iCloud ykkur hvort öðru nafn og netfang eða símanúmer samkvæmt reglum Apple. Gögnin eru í iCloud-aðgöngum ykkar tveggja. Cevlin rekur engan netþjón, hefur engan aðgang að þeim og fær aldrei að vita hver tengist.

Þegar þú ýtir á Aftengja er sameiginlega svæðinu eða færslunni þinni eytt úr iCloud. „Eyða öllum gögnum“ í Stillingum aftengir fyrst og eyðir engu ef ekki næst í iCloud, svo maki haldi aldrei aðgangi að lista sem þú taldir horfinn.

Samanburður með kóða

Án iCloud getur þú sent listann sem texta með hlekk (nafnid://) sem inniheldur aðeins númer nafnanna. Þú velur sjálf/ur hvernig textinn er sendur, til dæmis með Skilaboðum eða AirDrop. Hlekkur sem er opnaður breytir engu fyrr en þú staðfestir hann.

Kaup

Hægt er að opna allt appið með einum kaupum í App Store. Apple sér um greiðsluna og greiðsluupplýsingar. Appið spyr App Store aðeins hvort kaupin hafi verið gerð á Apple ID þínu. Cevlin fær hvorki nafn þitt, netfang né greiðsluupplýsingar, aðeins samanteknar sölutölur frá Apple.

Upplýsingar um þekkta Íslendinga

Nafnið sýnir opinberar upplýsingar um þekkta Íslendinga, bæði undir „Þekktir Íslendingar“ og sem „Þekktir nafnar“ á síðu hvers nafns: nafn og starfsheiti sem er samið fyrir appið. Upplýsingarnar koma úr Wikidata (CC0) og fylgja appinu; þær eru ekki sóttar á netinu og engu er bætt við um þig. Tilgangurinn er menningarlegur og fræðandi: að sýna hverjir hafa borið nafnið. Aðeins opinberar persónur eru taldar upp, og fólk sem hefur hlotið dóma eða tengst ofbeldismálum hefur verið tekið út. Grundvöllurinn er lögmætir hagsmunir af því að miðla opinberum upplýsingum um opinberar persónur.

Leiðrétting eða fjarlæging

Viltu láta fjarlægja einstakling eða leiðrétta upplýsingar um hann? Sendu póst á hello@cevlin.com með nafni einstaklingsins og því sem þarf að breyta. Breytingin kemur inn í næstu útgáfu appsins.

Heimildir og leyfi

Nafnagögnin fylgja appinu: Mannanafnaskrá (island.is); Beygingarlýsing íslensks nútímamáls (BÍN), © Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, höfundur og ritstjóri Kristín Bjarnadóttir (CC BY-SA 4.0, aðlagað; beygingargögn appsins eru öllum frjáls með sama leyfi); tölur frá Hagstofu Íslands (CC BY 4.0); vinsælustu nöfn nýfæddra barna frá Þjóðskrá Íslands; og Wikidata (CC0). Heimildirnar eru líka í appinu undir Stillingar → Um gögnin.

Heimildir tækisins og eyðing

Nafnið biður ekki um aðgang að myndavél, staðsetningu, tengiliðum, myndum eða hljóðnema. Þegar þú límir inn lista maka les appið aðeins það sem þú límir. „Eyða öllum gögnum“ í Stillingum eyðir listanum, tengingu við maka og nöfnum foreldra. Ef appinu er eytt hverfa gögn þess af tækinu; afrit stýrikerfisins kann að geyma þau samkvæmt stillingum þínum.

Breytingar og samband

Ef meðferð gagna breytist uppfærir Cevlin þessa síðu áður en sú útgáfa kemur út. Spurningar um persónuvernd sendist á hello@cevlin.com.

In English

Nafnið sends no data to Cevlin. It has no account with us, no analytics, no advertising and no tracking. Saved names and their ranking, a partner's list, the parents' names you enter for the child's full name, and your theme, appearance and language choices are stored on your device; the parents' names never leave it. Partner sharing is optional: inviting a partner creates a shared area in your own iCloud (CloudKit), shared only with the person you invite. Each of you keeps one record there holding the Mannanafnaskrá numbers of your saved names, labelled with an identifier Apple assigns to your iCloud account for this app (not your name or email). iCloud shows each of you the other's name and email or phone number so the invite can be accepted, under Apple's rules. The data lives in your two iCloud accounts; Cevlin runs no server, has no access to it and never learns who connects. Disconnecting deletes the shared area or your record; "Eyða öllum gögnum" (Delete all data) disconnects first and deletes nothing if iCloud cannot be reached. Without iCloud, you can send your list as a text with a nafnid:// link containing only name numbers; opening a link changes nothing until you confirm. The app can be fully unlocked with one App Store purchase: Apple handles payment, the app only asks the App Store whether your Apple ID owns it, and Cevlin receives no name, email or payment details, only aggregated sales figures from Apple. The app requests no device permissions. It also shows public information about well-known Icelanders (name and a job title written for the app) from Wikidata (CC0), bundled with the app and never fetched online, for cultural and informational purposes; people with convictions or abuse cases are excluded. To have a person removed or corrected, email us with their name and the change; it ships in the next app update. Sources: Mannanafnaskrá, BÍN (© The Árni Magnússon Institute for Icelandic Studies, author and editor Kristín Bjarnadóttir, CC BY-SA 4.0, adapted), Statistics Iceland (CC BY 4.0), Registers Iceland and Wikidata (CC0). Questions: hello@cevlin.com.