Nafnið fyrir iPhone

Aðstoð

Hjálp við leit, vistuð nöfn, samanburð við maka og gögn í símanum.

Fyrstu skrefin

  1. Opnaðu Uppgötva og strjúktu til hægri til að vista nafn eða til vinstri til að sleppa því. Afturkalla-hnappurinn sækir síðasta nafn aftur.

  2. Leitaðu í Nafnaskrá að hvaða samþykktu nafni sem er og opnaðu það til að sjá beygingar, merkingu og vinsældir eftir árum.

  3. Í Listanum finnurðu vistuð nöfn. Veljið nafn saman tengir lista maka og Nafnaeinvígi raðar uppáhaldsnöfnunum.

Þarf ég aðgang eða nettengingu?

Enginn aðgangur. Öll nafnagögn fylgja appinu. Netið þarf aðeins til að tengjast maka í gegnum iCloud og til að kaupa.

Hvað kostar Nafnið?

Leit, öll nöfn með beygingum, Uppgötva og allt að 10 nöfn á listanum fylgja niðurhalinu. Ein kaup, engin áskrift, opna ótakmarkaðan lista, tengingu við maka, Nafnaeinvígi og öll litaþemu. Maki sem samþykkir boðið þitt fær sama aðgang á meðan þið eruð tengd. Endurheimta kaup er í Stillingum.

Hvernig berum við saman lista?

Í Listanum: Veljið nafn saman → Bjóða maka. Boðið fer í gegnum iCloud, t.d. í iMessage, og þegar maki samþykkir sjáið þið bæði sameiginlegu nöfnin. Án iCloud: Senda lista, og maki ýtir á hlekkinn eða afritar skilaboðin og límir þau inn í Nafnið.

Hvernig sé ég fullt nafn barnsins?

Opnaðu Stillingar → Fjölskyldan, sláðu inn nöfn foreldra og veldu hvernig kenninafnið er myndað (-son, -dóttir eða -bur).

Af hverju vantar beygingu eða merkingu við sum nöfn?

Beygingar koma úr BÍN og eru aldrei búnar til. Merking birtist aðeins þegar nafnliðirnir eru skýrir. Láttu okkur vita ef þú finnur villu.

Hvaðan koma Þekktir Íslendingar?

Úr Wikidata (CC0). Starfsheitin eru samin fyrir Nafnið og fólk sem hefur hlotið dóma eða tengst ofbeldismálum er ekki með. Viltu láta fjarlægja eða leiðrétta einhvern? Sendu okkur póst og breytingin kemur í næstu útgáfu.

Fylgja listarnir mér á nýjan síma?

Listinn er geymdur í símanum og flyst með afriti iOS ef það er virkt. Ef þið eruð tengd í gegnum iCloud er listi maka áfram tengdur á nýja símanum þegar afritið fylgir.

Can I use the app in English?

Yes. Open Stillingar (Settings) and choose English. The whole app switches at once; names, case forms and meanings stay in Icelandic.

Opin gögn

Beygingar nafna í Nafninu

Beygingarmyndirnar og kenninafnastofnarnir í appinu eru byggðir á Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN), © Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, höfundur og ritstjóri Kristín Bjarnadóttir. Gögnin eru aðlöguð (valin samþykkt nöfn, eintala án greinis) og eru öllum frjáls með sama leyfi, CC BY-SA 4.0.

The app's name declensions, adapted from BÍN, are free to reuse under CC BY-SA 4.0.

Vantar þig frekari aðstoð?

Segðu okkur hvað gerðist.

Email us in Icelandic or English. Include your iPhone model, iOS version and the name or screen you were looking at.

Email support